Stuðningshópur fyrir þá sem eru að takast á við streitu – kulnun – örmögnun

Stuðningshópur fyrir þá sem eru að takast á við streitu, kulnun eða örmögnun.  

Markmið
Að þátttakendur eigi í samskiptum við aðra sem eru að upplifa svipaðan heilsubrest. Þyggi faglegan stuðning og leiðsögn sálfræðings. Fái rými til að tjá líðan sína, upplifun af veikindum og bataferlinu. Skiptist á skoðunum, veiti og þyggi skilning, samkennd og hlýju. Hóp stuðningur veitir þátttakendum hvatningu og von, sem er sannarlega þarft í því langa bataferli sem fylgir oft kulnun og örmögnun.

Það er ekki sett sú krafa á þátttakendur að þeir sinni heimaverkefnum milli funda ef þeir eru í miklu endurhæfingarprógrammi. Tímarnir eiga að vera til að létta á líðan, virkja samkennd í eigin garð og auka drifkraft í löngu bataferli.

Hefst 20. september.

Hentar
Öllum þeim sem eru að upplifa truflandi einkenni streitu, kulnunar eða örmögnunar.

Hvar
Námskeiðið fer fram í notalegum sal Samkenndar Heilsuseturs að Tunguhálsi 19.

Hvenær
Hist verður einn þriðjudag í mánuði, dagana 20.sept, 25.okt og 29.nóv. kl. 19-21.

Fjöldi
8-10 manns

Innifalið:

  • Alls 6 klukkustundir undir leiðsögn sálfræðings.
  • Stuðningur og hvatning annarra sem eru að takast á við svipaðan heilsubrest.
  • Ótakmarkaður aðgangur að samkenndar- og núvitundar hugleiðslum.
  • Sameiginleg facebook síða þar sem þátttakendur geta átt í samskiptum milli funda og áfram eftir að fundum lýkur.

Uppsetning hvers tíma:

  • Núvitundaræfing
  • Stutt fræðsla
  • Umræður og skoðanaskipti mun taka mestan tíma
  • Markmið sett
  • Samkenndarhugleiðsla

Leiðbeinandi
Anna Sigurðardóttir sálfræðingur er með mikla reynslu af því að vinna með lágt sjálfsmat, streitu/kulun, örmögnun, kvíða, sorg og áföll. Hún miðlar fagþekkingu sinni á efninu ásamt dæmum að persónulegri reynslu sinni af örmögnun. Anna er einnig Yoga Nidra leiðbeinandi og stofnandi Samkenndar Heilsuseturs.

Verð: 36.000 krónur
Flest stéttarfélög taka þátt í kostnaði vegna námskeiða. Við hvetjum fólk til að kanna sinn rétt til endurgreiðslu.

ATH. Ekki er hægt að fá endurgreitt ef tilkynnt er um forföll innan við 2 sólarhringum áður fyrsti tími hefst.

Frekari upplýsingar er hægt að fá í gegnum netfangið anna@samkennd.is.

(Athugið að þessi viðburður er námskeið en ekki klínísk meðferð.)
(ATH. Stuðningshópurinn fer einungis af stað ef lágmarksþátttaka næst).

Scroll to Top