Sylvía Guðmundsdóttir

Markþjálfi og mannauðssérfræðingur

Sylvía er vottaður ACC markþjálfi frá ICF. Hún fléttar saman fræðum markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði með áherslu á skýra framtíðarsýn, raunhæf markmið, vöxt og aukna vellíðan. Sylvía leggur áherslu á að vinna með styrkleika markþega og finna hvernig þeir nýtast best til að ná settu marki.

Menntun og starfsreynsla
Sylvía er með Bs í sálfræði og Ms í mannauðsstjórnun frá HÍ, Ms diploma í jákvæðri sálfræði frá EHÍ, framhaldsnám í markþjálfun frá Profectus og nám í breytingastjórnun við Harvard háskóla.

Í dag starfar hún sem mark- og teymisþjálfi, fyrirlesari, kennari í markþjálfun hjá Profectus og sérkennslustjóri leikskóla. Áður vann hún m.a. sem ráðningarstjóri, stundakennari í breytingastjórnun við HÍ, mannauðssérfræðingur og við bankastörf á fyrirtækjasviði. Sylvía sat í stjórn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) og sinnti formennsku í  trúnaðarmannaráði Arion banka.

Sú víðtæka starfs- og lífsreynsla sem Sylvía býr yfir eykur færni hennar í að takast á flókin viðfangsefni með opnum huga og skilningsríku viðhorfi.

Viðtölin fara fram á stofu Samkenndar eða í gegnum fjarfundarbúnað og eru í boði eftir kl. 17:00 mánudaga til fimmtudaga og eftir kl 13:00 á föstudögum.

Scroll to Top