Einstaklingar
Við bjóðum upp á einstaklingsviðtöl og þjónustu fyrir einstaklinga og miðast hver meðferð við vanda og þarfir skjólstæðings. Hver fagaðili byggir meðferðir sínar á árangursmiðuðum og gagnreyndum aðferðum út frá sinni sérfræðiþekkingu. Sumir fagaðilar veita einnig fjarþjónustu ef það hentar betur.
Dáleiðsla
Sigríður Anna býður upp á dáleiðslu til þess að efla innri styrk, sjálfsamkennd, sjálfstraust og sjálfsöryggi, draga úr streitu, ótta og depurð af ýmsu tagi og róa taugakerfið. Einnig gagnast dáleiðsla vel til þess að losa sig undan óhjálplegum venjum vana, fíkn, eða til þess að takast á við þyngdarstjórnun og þegar borðað er af tilfinningalegum ástæðum.
Félagsráðgjafi
Félagsráðgjafi veitir einstaklingsmeðferð m.a. við meðvirkni, litlu sjálfstrausti, brotinni sjálfsmynd, samskiptaerfiðleikum, ofbeldi í samböndum, finna jafnvægi í daglegu lífi og draga úr streitu. Einnig að þjálfa djúpslökun og finna hugarró. Félagsráðgjafi styður við þá sem vilja vinna í væntumþykju í eigin garð, draga úr niðurbrjótandi hugsunum og tilfinningalegri vanlíðan, brjóta upp óheilsusamlegan vana og takast á við breytingar.
Sálfræðingar
Bjóða upp á greiningu geðræns vanda og einstaklingsmeðferðir, meðal annars við kvíða, lágu sjálfsmati, streitu, kulnun, örmögnun, áráttu og þráhyggju, þunglyndi, ástvinamissi, sorg og áföllum. Einnig meðferðir til að takast á við tilfinningalegar hliðar ófrjósemi, alhliða heilsueflingu, markmiðasetningu, á hegðunarbreytingum o.fl.