Inga Rún Björnsdóttir er klínískur sálfræðingur með mikinn áhuga á andlegri heilsu og jafnvægi, hugrænni færni, streitustjórnun, slökun, núvitund og svefni. Hún starfaði um árabil sem sálfræðingur í taugasálfræðiþjónustu Landspítala og sem stundakennari í klínískri taugasálfræði við HÍ. Einnig starfaði hún um árabil hjá Betri Svefn við greiningu og meðferð svefnvanda og í Sálfræðiráðgjöfinni. Nú starfar hún sjálfstætt, staðsett í Samkennd Heilsusetri, Tunguhálsi 19.
Inga Rún er með Cand. Psych. próf í sálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla, með áherslu á taugasálfræði og klíníska sálfræði. Mastersritgerð hennar fjallaði um hugræn og andleg einkenni MS-sjúkdómsins, ásamt mikilvægi hugrænnar endurhæfingar og sálfræðilegs stuðnings vegna sjúkdómsins. Haustið 2026 mun hún hefja sérnám í klínískri taugasálfræði samhliða störfum sínum sem klínískur sálfræðingur og jógakennari.
Inga Rún sinnir sálfræðimeðferð fullorðinna við svefnvanda, kvíða, depurð, þunglyndi, streitu, lágu sjálfsmati, sorg og missi með aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM og HAM-S), Acceptance and Commitment Therapy (ACT) og núvitundar (e. mindfulness). Einnig veitir hún ráðgjöf í hugrænni þjálfun, svo sem minnis- og skipulagstækni, sem styður við betri einbeitingu, yfirsýn og virkni í daglegu lífi.
Hægt er að bóka einstaklingstíma hjá Ingu Rún í gegnum Noona (hlekkur:
https://noona.is/ingarunsal) eða senda tölvupóst á
inga@inga.run. Þar sem hún er jafnframt sérfræðingur á fjölmörgum velferðartorgum fyrirtækja í gegnum Kara Connect er hægt að skoða hvort viðkomandi vinnustaður sé hluti af þeirri þjónustu og bóka viðtal í gegnum velferðartorgið. Einnig er hún þjónustuaðili hjá VIRK starfsendurhæfingu.
Inga Rún er jafnframt menntuð jógakennari frá Jógasetrinu hjá Auði Bjarnadóttur (200 stunda jógakennaranám í Hatha / Vinyasa og Amrit IAM Yoga) og hefur einnig lokið 20 stunda Yin Yoga kennaranámi. Einnig er hún með IAM Yoga Nidra advanced kennararéttindi frá Amrit Yoga Institute / Kamini Desai. Þar að auki hefur hún tekið gong tónheilunar námskeið hjá Saraswati Om.
Inga Rún hefur reglulega haldið jóga námskeið og jógaviðburði síðustu ár samhliða störfum sínum sem sálfræðingur, meðal annars í Jógasetrinu, Plómunni Hagamel, Móum Studio og í gegnum Zoom. Inga Rún býður nú einnig upp á jóga nidra námskeið í Samkennd Heilsusetri. Jóga nidra námskeið sem hún leiðir á næstunni má innan skamms finna á heimasíðunni hennar www.inga.run undir “Jóga og slökun” og á dagatali Samkenndar Heilsuseturs.
Sjá nánari lýsingu á störfum hennar sem sálfræðingur og jógakennari á www.inga.run