Forsíða » Námskeið og fræðsla » Jóga
Jóga
Með iðkun jóga er unnið heildrænt með manneskjuna, eflum núvitund, aukum einbeitingu og sköpum jafnvægi milli huga og líkama. Rannsóknir sýna fram á að tengsl eru á milli jóga iðkunar og minnkun einkenna ýmissa kvilla líkamans s.s stoðkerfisvanda, verkja, streitu, kvíða, þunglyndis og áfallastreitu. Í Samkennd bjóðum við upp á ýmsar tegundir af jóga sem hver kennari kynnir með sínum hætti.
Yoga Nidra
Yoga Nidra er liggjandi leidd hugleiðsla þar sem iðkendur eru leiddir inn í djúpslökun með ýmsum hætti með því markmiði að hámarka hvíld og endurheimt. Í gegnum djúpslökun, hugleiðslur og öndunaræfingar leiðum við hugann frá streituvaldandi hugsunum yfir í ró og sefum hugann. Þegar líkaminn kemst á dýpsta svið slökunar, milli svefns og vöku, getur hann farið að heila sig, losað um streitu og náð aftur jafnvægi.
Rannsóknir benda til þess að með reglulegri Yoga Nidra iðkun eigum við auðveldara með að virkja slökunarviðbragð líkamans (e. Relax response), ná betri hvíld og endurheimt og stuðlum að auknu streituþoli.
Orkuflæði
Yin Yoga
Mjúkir tímar þar sem djúpum teygjum er haldið í 2 – 5 mínútur. Notast er við kubba, púða og jógaólar til að styðja við okkur inn í stöðunum þannig að hverju og einu líði sem best en fái jafnframt djúpa teygju. Með því að iðka yin yoga í sal við stofuhita erum við að vinna á bandvefnum sem gegnir mikilvægu hlutverki. Liðleiki eykst og almenn vellíðan á líkama og sál mun verða meiri við iðkun yin yoga. Tímarnir enda alltaf á slökun.
Orkuflæði – Miðvikudagar kl. 18:15 – Hefst 8. maí
Næsta námskeið hefst 1. maí og er til xxx. Tímarnir eru á miðvikudögum kl. 18:15.