Paranuddnámskeið

Næsta námskeið
17. janúar 2024

Tímasetning
Miðvikudag 17. janúar 19:00 – 22:00 

Fyrir hverja
Pör sem vilja læra að nudda hvort annað amennnilega á herðum, hálsi og höfði.

Markmið námskeiðsins
Kenna pörum að létta á vöðvabólgu, stífum vöðvum og höfuðverk hvort hjá öðru ásamt því að kenna þeim að nudda þannig að þau verði ekki of þreytt í höndum og fingrum við að nudda.

  • Kennsla í nuddi á brjóstbaki, herðum, hálsi, hnakka og höfði.
  • Kennsla í líkamsbeitingu þegar nuddað er.

Kostnaður
24.900 kr fyrir parið

Athugið að flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið. Einnig geta atvinnuleysisbótaþegar sótt um greiðsluþátttöku hjá Vinnumálastofnun. Við hvetjum fólk til að kanna sinn rétt til endurgreiðslu.

Leiðbeinandi
Leiðbeinandi er Gunna Húnfjörð, heilsunuddari og móðir. Hún rekur nudd- og snyrtistofuna Dharma heilsa í Mosfellsbæ ásamt því að halda reglulega námskeið fyrir fólk sem vill líða betur á líkama og sál.

Skráning
Skráning fer fram á dharmaheilsa.is/voruflokkur/namskeid/
Ath. einungis 5 pláss í boði á hverju námskeiði. Skráningarfrestur er til 14. janúar 2024.

Scroll to Top