Jóga Nidra – Hádegishleðsla á mánudögum

Hvernig hljómar að nýta hádegið þitt til að endurhlaða þig og fara orkumeiri áfram út í daginn þinn?

Nýtt tímabil er 25. mars – 27. maí. 8 skipta námskeið (2. í páskum og 2. í hvítasunnu detta út). Kennt er á mánudögum kl. 12.10-12.55. 

Jóga nidra er liggjandi leidd hugleiðsla og djúpslökun. Á þessum 45 mínútum upplifir þú algjörlega áreynslulausa streitulosun og ferð endurnærð/ur/t út úr tímanum. Iðkandinn er leiddur inn í djúpa slökun, inn í þögnina og kyrrðina handan hugans þar sem líkaminn, á þessu stigi slökunar, fær tækifæri til að heila sig, losa um streitu og ná betra jafnvægi. Það besta við jóga nidra er að það er ekki hægt að gera þetta vitlaust og þú liggur útaf allan tímann og slakar á og gefur eftir og æfir þig í að finna og vera í stað þess að hugsa og gera.

Mættu eins og þú ert, engin þörf á sérstökum æfingafatnaði eða fylgihlutum. Það eru jógadýnur, púðar og teppi á staðnum.
 
Verð kr. 23.900

Skráning og nánari upplýsingar á jogatilthin@gmail.com.

Scroll to Top