Jóga

Með iðkun jóga er unnið heildrænt með manneskjuna, eflum núvitund, aukum einbeitingu og sköpum jafnvægi milli huga og líkama. Rannsóknir sýna fram á að tengsl eru á milli jóga iðkunar og minnkun einkenna ýmissa kvilla líkamans s.s stoðkerfisvanda, verkja, streitu, kvíða, þunglyndis og áfallastreitu. Í Samkennd bjóðum við upp á ýmsar tegundir af jóga sem hver kennari kynnir með sínum hætti.

Yoga Nidra

Yoga Nidra er liggjandi leidd hugleiðsla þar sem iðkendur eru leiddir inn í djúpslökun með ýmsum hætti með því markmiði að hámarka hvíld og endurheimt. Í gegnum djúpslökun, hugleiðslur og öndunaræfingar leiðum við hugann frá streituvaldandi hugsunum yfir í ró og sefum hugann. Þegar líkaminn kemst á dýpsta svið slökunar, milli svefns og vöku, getur hann farið að heila sig, losað um streitu og náð aftur jafnvægi. 

Rannsóknir benda til þess að með reglulegri Yoga Nidra iðkun eigum við auðveldara með að virkja slökunarviðbragð líkamans (e. Relax response), ná betri hvíld og endurheimt og stuðlum að auknu streituþoli.

Hildur Rut
Björnsdóttir

Jógakennari og jóga nidra leiðbeinandi
jogatilthin@gmail.com

Orkuflæði

Þessir tímar eru fjölbreyttir jógatímar þar sem margar tegundir jóga fá pláss. Sumir tímar eru rólegir og mjúkir, aðrir eru kröftugir og í flæði. Grunnurinn byggist á Hatha yoga en oft er kröftugum æfingum spilað inn í og jafnvel æfingum sem ýta okkur aðeins út fyrir boxið og fá okkur stundum til að brosa og hafa húmor fyrir okkur sjálfum. Slökun í lok hvers tíma.

Hildur Rut
Björnsdóttir

Jógakennari og jóga nidra leiðbeinandi
jogatilthin@gmail.com

Yin Yoga

Mjúkir tímar þar sem djúpum teygjum er haldið í 2 5 mínútur. Notast er við kubba, púða og jógaólar til að styðja við okkur inn í stöðunum þannig að hverju og einu líði sem best en fái jafnframt djúpa teygju. Með því að iðka yin yoga í sal við stofuhita erum við að vinna á bandvefnum sem gegnir mikilvægu hlutverki. Liðleiki eykst og almenn vellíðan á líkama og sál mun verða meiri við iðkun yin yoga. Tímarnir enda alltaf á slökun.

Hildur Rut
Björnsdóttir

Jógakennari og jóga nidra leiðbeinandi
jogatilthin@gmail.com

Framundan

Orkuflæði – Hefst 2. september

Næstu námskeið
Mars: 4.-27. mars
Apríl: 3.-29. apríl
Maí: 1.-29. maí (enginn tími 20.maí)
Lesa meira

Orkuflæði – Miðvikudagar kl. 18:15

Næsta námskeið
8 skipta námskeið hefst 20. mars og er til 8. maí. Tímarnir eru á miðvikudögum kl. 18:15.
Lesa meira

Jóga Nidra – Hádegishleðsla á mánudögum

Hvernig hljómar að nýta hádegið þitt til að endurhlaða þig og fara orkumeiri áfram út í daginn þinn?
Nýtt tímabil er 25. mars - ...
Lesa meira

Orkuflæði

Næstu námskeið
Mars: 4.-27. mars
Apríl: 3.-29. apríl
Maí: 1.-29. maí (enginn tími 20.maí)
Lesa meira

Jóga Nidra hádegishleðsla

Námskeið framundan
Næsta námskeið hefst 8. janúar og er til 26. febrúar.
Lesa meira

Desemberkyrrð – Jóga Nidra

Næstu námskeið
Tvö fjögurra vikna námskeið hefjast 6. desember og eru til 27. desember:
Námskeið 1: Er miðvikudaga kl 16:45 til 17:45 Námskeið 2: Er miðvikudaga kl ...
Lesa meira

Yoga – Vinyasa Flow all levels

Yoga - Vinyasa Flow all levels 21st thursday at 18:30-19:30 Fee only 1000 kr each class.
Lesa meira

Meditation

Meditation is a very effective tool for training the mind. Thanks to meditation, we deepen our self-awareness, gain distance towards our thoughts and practice concentration.

...
Lesa meira

Yoga & Mindfulness

I would like to invite you to a free introduction class to Yoga and Mindfulness. Slow Vinyasa Flow with Pranayama (breathing techniques). Great for beginners ...
Lesa meira

JÓGAKYRRÐ – Jóga Nidra

Næsti kynningartími í jóga með Hildi verður miðvikudaginn 14. júní milli 16.45 og 17.45 Í þessum kynningartíma mun Hildur frá Jóga til þín leiða jóga ...
Lesa meira

Kynningartími – Jóga með Hildi

Næsti kynningartími í jóga með Hildi verður miðvikudaginn 14. júní milli 16.45 og 17.45 Í þessum kynningartíma mun Hildur frá Jóga til þín leiða jóga ...
Lesa meira
Scroll to Top