Desemberkyrrð – Jóga Nidra

Næstu námskeið

Tvö fjögurra vikna námskeið hefjast 6. desember og eru til 27. desember:
Námskeið 1: Er miðvikudaga kl 16:45 til 17:45
Námskeið 2: Er miðvikudaga kl 18:15 til 19:15

Yoga Nidra er liggjandi leidd hugleiðsla þar sem iðkendur eru leiddir inn í djúpslökun með ýmsum hætti með því markmiði að hámarka hvíld og endurheimt. Í gegnum djúpslökun, hugleiðslur og öndunaræfingar leiðum við hugann frá streituvaldandi hugsunum yfir í ró og sefum hugann. Þegar líkaminn kemst á dýpsta svið slökunar, milli svefns og vöku, getur hann farið að heila sig, losað um streitu og náð aftur jafnvægi.

Rannsóknir benda til þess að með reglulegri Yoga Nidra iðkun eigum við auðveldara með að virkja slökunarviðbragð líkamans (e. Relax response), ná betri hvíld og endurheimt og stuðlum að auknu streituþoli.

Tímarnir hefjast með mjúkum teygjum og svo tekur við 35-45 mínútna djúpslökun.

Leiðbeinandi Hildur Rut Björnsdóttir Jógakennari

Verð kr. 11.900,-
Skráning á jogatilthin@gmail.com.

Scroll to Top