Hreyfing og slökun
Líkaminn er hannaður fyrir hreyfingu. Hreyfðu þig helst á hverjum degi á þann máta sem að þér líður best með.
Bandvefslosun með Heklu
Rólegir tímar þar sem vöðvar og bandvefur er nuddaður með mismunandi nuddboltum með það markmið að róa niður taugakerfið og auka líkamsvitund. Góð slökun í lok hvers tíma. Þessar æfingar hjálpa til við að draga úr streitu,draga úr verkjum og minnka vöðvaspennu ásamt því að bæta líkamstöðu og auka liðleika. Mikil fræðsla er í hverjum tíma.
Meðvituð líkamsrækt með Sólveigu
Námskeið fyrir konur sem vilja hreyfa sig á meðvitaðan hátt og líða betur í eigin líkama. Námskeiðið samanstendur af rólegu en markvissu hreyfiflæði með áherslu á styrk, liðkun og teyjur. Í lok hvers tíma er 10-15 mín leidd slökun með áherslu á núvitund.
Sólveig hefur sjálf glímt við streitu og heilsubrest og hefur sett þetta námskeið saman úr því sem hefur reynst henni vel í átt að betri heilsu og bættari lífsgæðum ásamt fagþekkingu sinni. Hver og ein vinnur á sínum hraða og mikilvægt er að hlusta alltaf á eigin líkama. Það að öðlast aukin styrk og teygja og liðka líkamann vinnur gegn verkjum og stirðleika. Það er ekkert um hopp eða mikla ákefð.
Orkuflæði með Hildi Rut
Þessir tímar eru fjölbreyttir jógatímar þar sem margar tegundir jóga fá pláss. Sumir tímar eru rólegir og mjúkir, aðrir eru kröftugir og í flæði. Grunnurinn byggist á Hatha yoga en oft er kröftugum æfingum spilað inn í og jafnvel æfingum sem ýta okkur aðeins út fyrir boxið og fá okkur stundum til að brosa og hafa húmor fyrir okkur sjálfum. Slökun í lok hvers tíma.
Umbreytandi öndunarvinna – breathwork transformation ( BWT) með Margréti
Umbreytandi öndunarvinna er öndunartækni sem þróuð var af Dr. Itai Ivtzan, stofnanda School of Positive Transformation. Tæknin sameinar hringlaga öndun og núvitund til að losa um spennu og streitu og getur komið af stað breyttu meðvitundarástandi sem getur leitt til ótrúlegra breytingar. Hún styður við persónulegan vöxt og eflir tilfinningu fyrir lífsorku, frelsi og vellíðan. Þátttakendur geta upplifað djúpar líkamlegar, tilfinningalegar og andlegar breytingar, þar á meðal aukna sjálfsvitund, innri ró og tengingu við aðra. Það er enging önnur tækni sem getur farið með þátttakendur í eins djúpt innra ferðalag á svo stuttum tíma eins og BWT.
Mögulegur ávinningur
- Tilfinningalosun
Þátttakendur geta tengst og losað gömul áföll, fastar tilfinningar og reiði. - Aukin sjálfsvitund
Ferlið getur leitt til dýpri innsæis og betri skilnings á sjálfum sér. - Persónulegur vöxtur
Aðferðin styður við heilun og persónulega umbreytingu, sem gerir fólki kleift að finna meiri lífsfyllingu og frelsi. - Andleg tenging
Margir lýsa tilfinningu fyrir einingu, kærleika og tengslum við náttúruna og aðra einstaklinga. - Minnkuð streita og spenna
Tæknin er hönnuð til að losa líkama og huga undan spennu og álagi.
Yin jóga & Bandvefslosun
Þetta námskeið er í anda vinsælu pop-up tímanna sem Hekla og Hildur hafa leitt saman. Mýkt og mildi verður í fyrirrúmi í þessum tímum sem enda allir á ljúfri slökun. Í síðasta tíma námskeiðsins verður jóga nidra djúpslökun.
Hekla sér um bandvefslosunarhlutann þar sem bandvefur og vöðvar eru nuddaðir með mismunandi nuddboltum. Þú lærir að hlusta á líkamann þinn og getur metið hversu mikinn þrýsting líkaminn þinn þolir. Við notum svo blöðrubolta til að minnka og auka þrýsting þar sem við á. Í kjölfarið muntu finna fyrir aukinni líkamsvitund.
Farið verður í bandvefsbrautirnar sem útskýra svo vel hvernig bandvefurinn tengir vöðvana saman eftir ákveðnum leiðum. Fræðslan hjálpar okkur einnig að skilja betur upptök verkja því mjög oft eiga verkir upptök sín á öðrum stöðum en þar sem við finnum fyrir þeim.
Hildur mun svo sjá um yin jóga hlutann. Í yin jóga er djúpum teygjum haldið í 2 til 5 mínútur. Notast er við kubba, púða og jógaólar til að styðja iðkandann inn í stöðunum þannig að hverjum og einum líði sem best en fái jafnframt djúpa teygju. Með iðkun yin jóga aukum við liðleika og almenna vellíðan á líkama og sál. Hér reynir minna á líkamlegan styrk en í venjulegu jógaflæði þar sem fókusinn er að mýkja og lengja.
Bandvefslosun & Jóga Nidra
Mýkt og mildi verður í fyrirrúmi þar sem Hekla og Hildur munu leiða Bandvefslosun og Jóga nidra djúpslökun. Blandan passar einstaklega vel saman þar sem verið er að vinna á bæði bandvefskerfi líkamans og taugakerfinu sem tengjast sterkum böndum og hafa mikil áhrif hvort á annað. Á námskeiðinu náum við að róa bæði líkama og huga. Við byrjum á Bandvefslosun og svo tekur við Jóga nidra djúpslökun þar sem þú færð tækifæri til að gefa fullkomlega eftir. Námskeiðið hentar öllum sem vilja rólega og endurnærandi hreyfingu sem bæði mýkir líkama og sál.
Í Bandvefslosun er unnið í ró og á meðan við nuddum líkamann. Bandvefur og vöðvar líkamans eru nuddaðir með mismunandi boltum og þú lærir að hlusta á þau boð sem líkaminn sendir þér. Við notum svo blöðrubolta til að minnka eða auka þrýsting eftir því sem við á. Í kjölfarið muntu finna fyrir aukinni líkamsvitund. Farið verður í bandvefsbrautirnar sem útskýra svo vel hvernig bandvefurinn tengir vöðva líkamans saman eftir ákveðnum leiðum.
Jóga nidra er liggjandi leidd hugleiðsla og djúpslökun. Í tímunum upplifir þú algjörlega áreynslulausa streitulosun og ferð slakari eða orkumeiri út úr hverjum tíma. Við leiðum þig inn í djúpa slökun, inn í þögnina og kyrrðina handan hugans þar sem líkaminn, á þessu stigi slökunar, fær m.a. tækifæri til að heila sig og losa út umfram streituhormón sem stuðlar að betra andlegu jafnvægi.
Yin Yoga með Hildi Rut
Mjúkir tímar þar sem hverri teygju/stöðu er haldið í 2-5 mínútur á meðan athyglin er færð inn á við. Notast er við kubba, púða og jógaólar til að styðja við okkur inn í stöðunum þannig að hverju og einu líði sem best í sínum líkama en fái jafnframt góða teygju.
Með því að iðka yin yoga í sal við stofuhita erum við að vinna á og mýkja bandvefinn en hann gegnir mikilvægu hlutverki í líkamanum og hefur m.a. áhrif á hreyfigetu okkar. Helsti ávinningur af reglubundinni ástundun yin yoga er oftar en ekki aukin meðvitund um ástand líkamans dag frá degi, hvort og á hvaða stöðum spenna leynist ì líkamanum, liðleikinn eykst og mýktin verður meiri. Þá upplifa mörg betri tengingu við innsæið, dýpri slökun og meiri hugarró. Allt þetta skilar sér svo út í hið daglega líf í formi skýrari fókus á verkefni hvers dags og betra andlegs jafnvægis heilt yfir. Tímarnir enda alltaf á góðri slökun.
Yoga Nidra með Hildi Rut
Yoga Nidra er liggjandi leidd hugleiðsla þar sem iðkendur eru leiddir inn í djúpslökun með ýmsum hætti með því markmiði að hámarka hvíld og endurheimt. Í gegnum djúpslökun, hugleiðslur og öndunaræfingar leiðum við hugann frá streituvaldandi hugsunum yfir í ró og sefum hugann. Þegar líkaminn kemst á dýpsta svið slökunar, milli svefns og vöku, getur hann farið að heila sig, losað um streitu og náð aftur jafnvægi.
Rannsóknir benda til þess að með reglulegri Yoga Nidra iðkun eigum við auðveldara með að virkja slökunarviðbragð líkamans (e. Relax response), ná betri hvíld og endurheimt og stuðlum að auknu streituþoli.
Events
-
-
Orkuflæði – Mán & mið – Hefst 2. feb
FeaturedNámskeiðið er fjölbreytt jóganámskeið þar sem margar tegundir jóga fá pláss. Sumir tímar eru rólegir og mjúkir, aðrir eru kröftugir og í flæði. Grunnurinn byggist á hatha jógastöðunum en oft er kröftugum æfingum spilað inn í og jafnvel æfingum sem ýta okkur aðeins út fyrir boxið og fá okkur stundum til að brosa og hafa húmor fyrir okkur sjálfum.
-
Hádegis Yin&Nidra – Hefst 5. feb
FeaturedÁ þessu námskeiði losum við bæði um spennu í líkamanum með yin jóga og spennu í huganum með jóga nidra. Seinni hluta tímans líðum við inn í djúpa slökun með aðferðum jóga nidra þar sem iðkandinn er leiddur markvisst og meðvitað inn í enn meiri ró og þögn og inn í kyrrðina handan hugans þar sem töfrarnir eiga sér stað.
-
Meðvituð líkamsrækt – Morgunnámskeið – Hefst 25. febrúar
FeaturedNámskeið fyrir konur sem vilja hreyfa sig á meðvitaðan hátt og líða betur í eigin líkama. Námskeiðið samanstendur af rólegu en markvissu hreyfiflæði með áherslu á styrk, liðkun og teyjur.
-
Yin jóga & Bandvefslosun – Mánudagar – Hefst 23. febrúar
FeaturedÞetta námskeið er í anda vinsælu pop-up tímanna sem Hekla og Hildur hafa leitt saman. Mýkt og mildi verður í fyrirrúmi í þessum tímum sem enda allir á ljúfri slökun. Í síðasta tíma námskeiðsins verður jóga nidra djúpslökun.
-
Meðvituð líkamsrækt – Kvöldnámskeið – Hefst 23.febrúar
FeaturedNámskeið fyrir konur sem vilja hreyfa sig á meðvitaðan hátt og líða betur í eigin líkama. Námskeiðið samanstendur af rólegu en markvissu hreyfiflæði með áherslu á styrk, liðkun og teyjur.
-
Bandvefslosun & Jóga Nidra – Fimmtudagar – Hefst 26. febrúar
FeaturedMýkt og mildi verður í fyrirrúmi þar sem Hekla og Hildur munu leiða Bandvefslosun og Jóga nidra djúpslökun. Blandan passar einstaklega vel saman þar sem verið er að vinna á bæði bandvefskerfi líkamans og taugakerfinu sem tengjast sterkum böndum og hafa mikil áhrif hvort á annað. Á námskeiðinu náum við að róa bæði líkama og huga.
-
Yin jóga & Bandvefslosun – Fimmtudagar – Hefst 26. febrúar
FeaturedÞetta námskeið er í anda vinsælu pop-up tímanna sem Hekla og Hildur hafa leitt saman. Mýkt og mildi verður í fyrirrúmi í þessum tímum sem enda allir á ljúfri slökun. Í síðasta tíma námskeiðsins verður jóga nidra djúpslökun.
-
Meðvituð líkamsrækt – Föstudagar – Hefst 27. febrúar
FeaturedNámskeið fyrir konur sem vilja hreyfa sig á meðvitaðan hátt og líða betur í eigin líkama. Námskeiðið samanstendur af rólegu en markvissu hreyfiflæði með áherslu á styrk, liðkun og teyjur.
Hreyfing og slökun
Með iðkun jóga er unnið heildrænt með manneskjuna, eflum núvitund, aukum einbeitingu og sköpum jafnvægi milli huga og líkama. Rannsóknir sýna fram á að tengsl eru á milli jóga iðkunar og minnkun einkenna ýmissa kvilla líkamans s.s stoðkerfisvanda, verkja, streitu, kvíða, þunglyndis og áfallastreitu. Í Samkennd bjóðum við upp á ýmsar tegundir af jóga sem hver kennari kynnir með sínum hætti.
Yoga Nidra
Yoga Nidra er liggjandi leidd hugleiðsla þar sem iðkendur eru leiddir inn í djúpslökun með ýmsum hætti með því markmiði að hámarka hvíld og endurheimt. Í gegnum djúpslökun, hugleiðslur og öndunaræfingar leiðum við hugann frá streituvaldandi hugsunum yfir í ró og sefum hugann. Þegar líkaminn kemst á dýpsta svið slökunar, milli svefns og vöku, getur hann farið að heila sig, losað um streitu og náð aftur jafnvægi.
Rannsóknir benda til þess að með reglulegri Yoga Nidra iðkun eigum við auðveldara með að virkja slökunarviðbragð líkamans (e. Relax response), ná betri hvíld og endurheimt og stuðlum að auknu streituþoli.
Orkuflæði
Þessir tímar eru fjölbreyttir jógatímar þar sem margar tegundir jóga fá pláss. Sumir tímar eru rólegir og mjúkir, aðrir eru kröftugir og í flæði. Grunnurinn byggist á Hatha yoga en oft er kröftugum æfingum spilað inn í og jafnvel æfingum sem ýta okkur aðeins út fyrir boxið og fá okkur stundum til að brosa og hafa húmor fyrir okkur sjálfum. Slökun í lok hvers tíma.
Yin Yoga
Mjúkir tímar þar sem djúpum teygjum er haldið í 2 – 5 mínútur. Notast er við kubba, púða og jógaólar til að styðja við okkur inn í stöðunum þannig að hverju og einu líði sem best en fái jafnframt djúpa teygju. Með því að iðka yin yoga í sal við stofuhita erum við að vinna á bandvefnum sem gegnir mikilvægu hlutverki. Liðleiki eykst og almenn vellíðan á líkama og sál mun verða meiri við iðkun yin yoga. Tímarnir enda alltaf á slökun.
Events
-
-
Orkuflæði – Mán & mið – Hefst 2. feb
FeaturedNámskeiðið er fjölbreytt jóganámskeið þar sem margar tegundir jóga fá pláss. Sumir tímar eru rólegir og mjúkir, aðrir eru kröftugir og í flæði. Grunnurinn byggist á hatha jógastöðunum en oft er kröftugum æfingum spilað inn í og jafnvel æfingum sem ýta okkur aðeins út fyrir boxið og fá okkur stundum til að brosa og hafa húmor fyrir okkur sjálfum.
-
Hádegis Yin&Nidra – Hefst 5. feb
FeaturedÁ þessu námskeiði losum við bæði um spennu í líkamanum með yin jóga og spennu í huganum með jóga nidra. Seinni hluta tímans líðum við inn í djúpa slökun með aðferðum jóga nidra þar sem iðkandinn er leiddur markvisst og meðvitað inn í enn meiri ró og þögn og inn í kyrrðina handan hugans þar sem töfrarnir eiga sér stað.
-
Paranuddnámskeið – 15. febrúar
FeaturedHentar vel fyrir pör sem vilja læra að nudda hvort annað almennilega á herðum, hálsi og höfði.
-
Meðvituð líkamsrækt – Morgunnámskeið – Hefst 25. febrúar
FeaturedNámskeið fyrir konur sem vilja hreyfa sig á meðvitaðan hátt og líða betur í eigin líkama. Námskeiðið samanstendur af rólegu en markvissu hreyfiflæði með áherslu á styrk, liðkun og teyjur.
-
Yin jóga & Bandvefslosun – Mánudagar – Hefst 23. febrúar
FeaturedÞetta námskeið er í anda vinsælu pop-up tímanna sem Hekla og Hildur hafa leitt saman. Mýkt og mildi verður í fyrirrúmi í þessum tímum sem enda allir á ljúfri slökun. Í síðasta tíma námskeiðsins verður jóga nidra djúpslökun.
-
Meðvituð líkamsrækt – Kvöldnámskeið – Hefst 23.febrúar
FeaturedNámskeið fyrir konur sem vilja hreyfa sig á meðvitaðan hátt og líða betur í eigin líkama. Námskeiðið samanstendur af rólegu en markvissu hreyfiflæði með áherslu á styrk, liðkun og teyjur.
-
Bandvefslosun & Jóga Nidra – Fimmtudagar – Hefst 26. febrúar
FeaturedMýkt og mildi verður í fyrirrúmi þar sem Hekla og Hildur munu leiða Bandvefslosun og Jóga nidra djúpslökun. Blandan passar einstaklega vel saman þar sem verið er að vinna á bæði bandvefskerfi líkamans og taugakerfinu sem tengjast sterkum böndum og hafa mikil áhrif hvort á annað. Á námskeiðinu náum við að róa bæði líkama og huga.
-
Gott jafnvægi – námskeið um streitustjórnun – Hefst 26. febrúar
FeaturedViltu skilja streitu betur og kunna leiðir sem virka fyrir þig til þess að minnka streitu í þínu lífi og hugsa betur um þig en jafnframt ná meiri árangri í lífi og starfi? Viltu skilja sjálfa þig betur og hvernig þú vilt eyða dögunum þínum?