Þyri Ásta Hafsteinsdóttir
Atferlisfræðingur
Þyri sérhæfir sig í svefn- og hegðunarvanda barna. Hún býður upp á einstaklingsviðtöl og einstaklingsmiðaða meðferð þar sem foreldrar fá fjarþjálfun í að vinna með vanda barnsins.
Menntun og starfsreynsla
Þyri er með MSc í atferlisfræði og BSc í sálfræði frá HR. Hún er menntaður LET samskiptaráðgjafi frá Gordon Training og er viðurkenndur stjórnendamarkþjálfi frá HR og NLP-markþjálfi frá Bruen. Samhliða starfi sínu hjá Samkennd starfar Þyri sem atferlisfræðingur í geðheilsuteymi taugaþroskaraskana hjá heilsugæslu höfuðborgarinnar. Auk þess starfar hún sem sérfræðingur í svefn- og hegðunaranda barna hjá Háttatími.
Með þolinmæði og seiglu vinnum við saman í að bæta svefn og eða hegðun barnsins þíns.
Algeng vandamál tengd svefni barna
- Eru ekki syfjuð þegar það er kominn háttatími
- Eru háð hlutum til þess að sofna (t.d. ljósi eða tónlist)
- Eru háð því að foreldri svæfi þau
- Eru lengi að festa svefn
- Hunsa fyrirmæli um háttatíma
- Kalla eða koma fram
- Koma upp í á nóttunni
- Martraðir
- Ná ekki ráðlögðum svefntíma
- Næturtryllingur
- Pissa undir
Algeng vandamál tengd hegðun barna
- Lemja, sparka, klípa, klóra og öskra
- Klósettvandi
- Matavendni
- Átök við vini og / eða bekkjafélaga
- Fara ekki eftir fyrirmælum
- Unglingavandi af ýmsum toga.