Næstu viðburðir

Kíktu í dagatal Samkenndar til að skoða næstu námskeið

Pop-up jóga nidra viðburður

Inga Rún jógakennari og sálfræðingur er reglulega með Pop-up jóga nidra kvöldviðburði í Samkennd Heilsusetri sem hægt að skoða á heimasíðu hennar https://inga.run/product-category/stakir-timar/pop-up-timar/
 
Inga Rún býður einnig bæði upp á fræðslu-og slökunarnámskeið og hefðbundin jóga nidra námskeið í Samkennd Heilsusetri (sjá www.inga.run/shop). Einnig er hægt að skrá sig í staka jóga nidra tíma sem eru alla þriðjudaga. 
 
Skráning á námskeið, staka tíma og viðburði fer fram í gegnum heimasíðuna www.inga.run/shop en einnig er hægt að senda henni tölvupóst á inga@inga.run eða senda henni skilaboð í gegnum samfélagsmiðla (sjá hlekk á samfélagsmiðla á heimasíðu hennar). Við hvetjum þig til að skrá þig einnig á póstlistann hennar á www.inga.run því hún gefur póstlistanum reglulega afsláttarkóða og miðlar þar fróðleik um ýmislegt er snertir heilsu og vellíðan.
 
Flest stéttarfélög taka þátt í niðurgreiðslu námskeiðanna, og einnig er Inga Rún þjónustuaðili hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði og geta skjólstæðinga Virk því rætt við ráðgjafa varðandi skráningu á námskeið. 

Inga Rún
Björnsdóttir

Sálfræðingur, svefnráðgjafi og jóga nidra kennari.

Scroll to Top