Næstu viðburðir

Kíktu í dagatal Samkenndar til að skoða næstu námskeið

Gott jafnvægi streitunámskeið

Lýsing
Viltu skilja streitu betur og kunna leiðir sem virka fyrir þig til þess að minnka streitu í þínu lífi og hugsa betur um þig en jafnframt ná meiri árangri í lífi og starfi?

Markmið

  • Að þátttakendur skilji betur langvarandi streitu og afleiðingar hennar.
  • Að þátttakendur læri leiðir sem virka fyrir þá til þess að minnka streitu í sínu lífi, að hlúa betur að sér og öðlast betra jafnvægi. En á sama tíma að ná betri árangri í lífi og starfi.
  • Að þátttakendur skilji sjálfa sig betur og hvernig þeir vilja lifa lífinu.

Viltu skilja sjálfa þig betur og hvernig þú vilt eyða dögunum þínum? Þetta segja þeir sem hafa sótt námskeiðið:

  • “Andrúmsloftið var hlýlegt og afslappað og gott að koma upp í Samkennd.”
  • “Á heildina litið fannst mér námskeiðið vera mjög gagnlegt og ég mæli eindregið með því fyrir alla sem vilja skilja streitu betur og læra hvernig er hægt að stjórna henni.”
  • “Lydía er augljóslega að tala bæði af reynslu og mikilli fagþekkingu og miðlar efninu til þátttakenda á fyrirhafnarlausan og þægilegan hátt.”

Hentar
Öllum sem upplifa einkenni of mikillar streitu og vilja læra leiðir til þess að finna betra jafnvægi.

Hvenær
Einu sinni í viku í 6 vikur í 2 klst í senn.

Dagskrá námskeiðs

  1. Streita og afleiðingar langvarandi streitu.
  2. Aðferðir við streitustjórnun og að komast í gott jafnvægi
  3. Grundvallaratriði hugrænnar atferlismeðferðar og taugakerfið
  4. Grunnþarfir og tilfinningar
  5. Sjálfsmynd, samkennd og núvitund
  6. Hver er ég og hver er mín framtíðarsýn?

Leiðbeinandi
Lydía Ósk Ómarsdóttir, sálfræðingur.

Lydía hefur persónulega reynslu af að vinna sig út úr miklu streituástandi þegar hún var óvinnufær í næstum tvö ár vegna kulnunar. Nú sinnir hún sálfræðimeðferð hjá Samkennd-heilsusetri þar sem hún hjálpar fólki að minnka streitu og finna betra jafnvægi og betri líðan.

Sendu póst á lydia@samkennd.is ef þú vilt vera með eða hefur frekari spurningar.

Lydía Ósk
Ómarsdóttir

Sálfræðingur

Scroll to Top