- This event has passed.
Verkfæri fyrir aukna velsæld – Hefst 3. september
September 3 @ 15:00 - 17:00
Næsta námskeið: Þriðjudagur 3. september kl 15-17
Viltu læra aðferðir til að ná betri stjórn á eigin líðan? Viltu læra aðferðir til að setja þér markmið og fylgja þeim eftir?
Verkfæri fyrir aukna velsæld er 6 vikna hópmeðferð þar sem þátttakendur fá verkfæri til að auka virkni og vellíðan og læra að setja sér markmið.
Hámarksþátttaka á námskeiðinu eru 10 manns. Leiðbeinandi mun kappkosta að gera andrúmsloftið persónulegt og þægilegt til að þátttakendur geti sagt frá reynslu sinni og fengið endurgjöf frá námskeiðshaldara.
Á námskeiðinu læra þátttakendur:
- Að takast á við vanlíðan á uppbyggilegan hátt
- Aðferðir til að styrkja sig í áskorunum daglegs lífs
- Aðferðir til að bæta frammistöðu
- Aðferðir til að finna gildi sín og setja sér markmið
Sérstaða námskeiðsins
Felst í því að það byggir á tveimur meðferðarstefnum: Hugrænni atferlismeðferð (HAM) og sáttar- og atferlismeðferð.
Fyrir hverja?
Þá sem vilja takast á við vanlíðan á uppbyggilegan hátt. Þá sem vilja setja sér markmið en eru hræddir við að fara út fyrir þægindarammann. Þá sem eru á krossgötum og vantar verkfæri til að takast á við nýjar áskoranir.
Hvar og hvenær?
Einu sinni í viku í 6 vikur í 2 klst í senn. Námskeiðið fer fram í húsnæði Samkenndar-Heilsuseturs, Tunguhálsi 19, 2 hæð.
Dagskrá námskeiðs:
- Farið í grunnatriði hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og hvernig þau nýtast til að bæta líðan og auka virkni.
- Fræðsla um félagskvíða út frá hugrænni atferlismeðferð og verkfæri kynnt til að takast á við hann.
- Kynning á ACT (sáttar- og atferlismeðferð).
- Fræðsla um gildi og markmið út frá ACT.
Kostnaður: 75.000.-
Athugið að flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið. Þá geta atvinnuleysisbótaþegar sótt um greiðsluþátttöku hjá Vinnumálastofnun. Þátttakendur eru hvattir til að kanna rétt sinn til endurgreiðslu.
Leiðbeinandi: Hugrún Sigurjónsdóttir sálfræðingur.
Hugrún þýddi bókina Hamingjugildran í fyrra. Bókin (Happiness trap) byggir á ACT meðferðarstefnu og hefur verið seld í milljónum eintaka um allan heim. Höfundur bókarinnar Russ Harris hélt tveggja daga námskeið hér á landi í maí síðastliðnum og sat Hugrún það námskeið. Hægt er að lesa um starfsreynslu og fagþekkingu Hugrúnar á https://samkennd.is/teymid/hugrun/
Skráning:
Hægt er að skrá sig á námskeiðið á hugrun@samkennd.is og hugrun85@hotmail.com