Lýsing
Námskeiðið er fyrir pör sem vilja læra að nudda hvort annað almennnilega á herðum, hálsi og höfði.
Markmið
Að kenna pörum að létta á vöðvabólgu, stífum vöðvum og höfuðverk hvort hjá öðru ásamt því að kenna þeim að nudda þannig að þau verði ekki of þreytt í höndum og fingrum við að nudda.
- Kennsla í nuddi á brjóstbaki, herðum, hálsi, hnakka og höfði.
- Kennsla í líkamsbeitingu þegar nuddað er.
Tímasetningar
sunnudagur, 13. september 2026
kl. 18:00-21:00
sunnudagur, 11. október 2026
kl. 18:00-21:00
sunnudagur, 8. nóvember 2026
kl. 18:00-21:00
sunnudagur, 6. desember 2026
kl. 18:00-21:00
sunnudagur, 10. janúar 2027
kl. 18:00-21:00
sunnudagur, 14. febrúar 2027 Valentínusardagurinn
kl.14:00-17:00
sunnudagur, 14. febrúar 2027 Valentínusardagurinn
kl. 18:00-21:00
sunnudagur, 14. mars 2027
kl. 18:00-21:00
sunnudagur, 11. apríl 2027
kl. 18:00-21:00
sunnudagur, 9. maí 2027
kl. 18:00-21:00
Leiðbeinandi
Gunna Húnfjörð er heilsunuddari. Hún rekur nudd- og snyrtistofuna Dharma heilsa í sama húsi og Samkennd ásamt því að halda reglulega námskeið fyrir fólk sem vill líða betur á líkama og sál.
Skráning
Skráning fer fram á dharmaheilsa.is/voruflokkur/namskeid/
Ath. einungis pláss fyrir 4 pör á hverju námskeiði.