Orkuflæði – Mán & mið – Hefst 3. febrúar – Nokkur laus pláss
February 3, 2025 @ 16:45 - 17:45
Orkuflæði á mánudögum og miðvikudögum
Næsta námskeið:
Hefst 3. febrúar á mánudögum og miðvikudögum í samtals 8 skipti. – Nokkur laus pláss.
Tímasetning
Kl: 16:45 – 17:45
Námskeiðið er fjölbreytt jóganámskeið þar sem margar tegundir jóga fá pláss. Sumir tímar eru rólegir og mjúkir, aðrir eru kröftugir og í flæði. Grunnurinn byggist á hatha jógastöðunum en oft er kröftugum æfingum spilað inn í og jafnvel æfingum sem ýta okkur aðeins út fyrir boxið og fá okkur stundum til að brosa og hafa húmor fyrir okkur sjálfum. Slökun í lok hvers tíma. Hér færðu að minnsta kosti einn yin jóga tíma og ávallt er einn tími námskeiðsins jóga nidra djúpslökun.
Leiðbeinandi
Hildur Rut Björnsdóttir jógakennari og jóga nidra leiðbeinandi
Verð
1 tímabil – 8 skipti – á 24.900,- kr.
3ja mánaða binding á 65.000,- kr.
Skráning
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á jogatilthin@gmail.com