Jóga Nidra hádegishleðsla – Hefst 27. janúar
January 27, 2025 @ 12:10 - 12:55
Jóga Nidra hádegishleðsla
Næsta námskeið:
27. janúar – 17. mars – 8 skipti
Tímasetning: Mánudagar 12.10-12.55
Lýsing:
Jóga Nidra er liggjandi leidd hugleiðsla og djúpslökun. Á þessum 45 mínútum upplifir þú algjörlega áreynslulausa streitulosun og ferð endurnærð/ur/t út úr tímanum.
Iðkandinn er leiddur inn í djúpa slökun, inn í þögnina og kyrrðina handan hugans þar sem líkaminn, á þessu stigi slökunar, fær m.a. tækifæri til að heila sig og losa út umfram streituhormón og stuðla að betra jafnvægi.
Það besta við jóga nidra er að það er ekki hægt að gera þetta vitlaust og þú liggur útaf allan tímann, slakar á, gefur eftir og æfir þig í að finna og vera í stað þess að hugsa og gera.
Leiðbeinandi: Hildur Rut Björnsdóttir jógakennari og jóga nidra leiðbeinandi
Verð:
24.900,- kr.
Skráning: Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á jogatilthin@gmail.com