Lýsing
Viltu skilja streitu betur og kunna leiðir sem virka fyrir þig til þess að minnka streitu í þínu lífi og hugsa betur um þig en jafnframt ná meiri árangri í lífi og starfi?
Markmið
- Að þátttakendur skilji betur langvarandi streitu og afleiðingar hennar.
- Að þátttakendur læri leiðir sem virka fyrir þá til þess að minnka streitu í sínu lífi, að hlúa betur að sér og öðlast betra jafnvægi. En á sama tíma að ná betri árangri í lífi og starfi.
- Að þátttakendur skilji sjálfa sig betur og hvernig þeir vilja lifa lífinu.
Viltu skilja sjálfa þig betur og hvernig þú vilt eyða dögunum þínum? Þetta segja þeir sem hafa sótt námskeiðið:
- “Andrúmsloftið var hlýlegt og afslappað og gott að koma upp í Samkennd.”
- “Á heildina litið fannst mér námskeiðið vera mjög gagnlegt og ég mæli eindregið með því fyrir alla sem vilja skilja streitu betur og læra hvernig er hægt að stjórna henni.”
- “Lydía er augljóslega að tala bæði af reynslu og mikilli fagþekkingu og miðlar efninu til þátttakenda á fyrirhafnarlausan og þægilegan hátt.”
Hentar
Öllum sem upplifa einkenni of mikillar streitu og vilja læra leiðir til þess að finna betra jafnvægi.
Hvenær
Einu sinni í viku í 6 vikur í 2 klst í senn.
Dagskrá námskeiðs
- Streita og afleiðingar langvarandi streitu.
- Aðferðir við streitustjórnun og að komast í gott jafnvægi
- Grundvallaratriði hugrænnar atferlismeðferðar og taugakerfið
- Grunnþarfir og tilfinningar
- Sjálfsmynd, samkennd og núvitund
- Hver er ég og hver er mín framtíðarsýn?
Leiðbeinandi
Lydía Ósk Ómarsdóttir, sálfræðingur.
Lydía hefur persónulega reynslu af að vinna sig út úr miklu streituástandi þegar hún var óvinnufær í næstum tvö ár vegna kulnunar. Nú sinnir hún sálfræðimeðferð hjá Samkennd-heilsusetri þar sem hún hjálpar fólki að minnka streitu og finna betra jafnvægi og betri líðan.
Sendu póst á lydia@samkennd.is ef þú vilt vera með eða hefur frekari spurningar.