Loading Events

« All Events

Orkuflæði – Mán & mið – Hefst 30. mars

March 30, 2026 @ 16:45 - 17:45

Orkuflæði á mánudögum og miðvikudögum

Næsta námskeið:
Hefst 30. mars á mánudögum og miðvikudögum í samtals 8 skipti til 27. apríl (ath. enginn tími annan í páskum þann 6. apríl).

Tímasetning
Kl: 16:45 – 17:45

Námskeiðið er fjölbreytt jóganámskeið þar sem margar tegundir jóga fá pláss. Sumir tímar eru rólegir og mjúkir, aðrir eru kröftugir og í flæði. Grunnurinn byggist á hatha jógastöðunum en oft er kröftugum æfingum spilað inn í og jafnvel æfingum sem ýta okkur aðeins út fyrir boxið og fá okkur stundum til að brosa og hafa húmor fyrir okkur sjálfum. Slökun í lok hvers tíma. Hér færðu að minnsta kosti einn yin jóga tíma og ávallt er einn tími námskeiðsins jóga nidra djúpslökun.

Leiðbeinandi
Hildur Rut Björnsdóttir jógakennari og jóga nidra leiðbeinandi

Verð 
1 tímabil – 8 skipti – á 24.900,- kr.
3ja mánaða binding á 65.000,- kr.

Skráning
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á jogatilthin@gmail.com

Details

Organizer