Maríanna Magnúsdóttir
Leiðtogi breytinga og eigandi Improvement
Maríanna hefur ástríðu fyrir því að hjálpa fólki að vera hamingjusamt í lífi og starfi með því að efla hæfni þess að þekkja sjálfið sitt, styrkleika sína og vera meðvitaðir leiðtogar.
Sérhæfing og áhugasvið
Maríanna hefur sérhæft sig í nútíma stjórnun og leiðtogafræðum í tengslum við innleiðingu á stefnu, umbreytingarvegferðir, menningu vinnustaða og mannlega þáttarins í breytingastjórnun.
Hún hefur reynslu sem stjórnandi, ráðgjafi, þjálfari og lóðs ásamt því að vera vön að koma fram á ráðstefnum, halda fyrirlestra, vinnustofur og námskeið.
Maríanna hefur verið í sinni eigin breytingavegferð í fjölda ára og kynnst mörgum gagnlegum tólum og aðferðum sem hún vill gjarnan miðla áfram til annarra. Hún hefur einlægan áhuga á fólki, andlegum málefnum og samskiptum. Utan vinnu elskar hún að vera á fjöllum og í allskyns útiveru, prjóna og njóta samveru með fjölskyldu og vinum.
Menntun og starfsreynsla
Rekstrarverkfræðingur, markþjálfi og heilari
Maríanna hefur unnið margvísleg störf sem eiga það sameiginlegt að bæta til hins betra og hjálpa fólki í lífi og starfi:
- Landsnet, Leiðtogi breytinga 2022-2024
- Reykjavíkurborg , Breytingaleiðtogi 2021
- Manino, Umbreytingaþjálfari og stjórnunarráðgjafi 2018-2021
- Glowing , markþjálfun og Kundalini Activation (KAP) 2021-2022
- VÍS – Forstöðumaður Umbótastofu 2011-2018
- Worldclass – kennari hóptíma og lífstílsnámskeiða 2010-2015
Menntun og námskeið:
Engla Reiki meistari 2024
Samkennd í eigin garð, Núvitundarsetrið haust 2024
ACT aukin vellíðan og æðruleysi, Núvitundarsetrið vor 2024
Vehoma empowerment training (leiðtogaþjálfun) í Danmörku 2023 – 2025
Yin yoga kennaranámskeið hjá Karma stúdíó (Guðrún Reynis) 2023
Otter Dance School of Earth Medicine hjá Robbie Warren 2022-2023 – Shamanic practitioners
Kundalini Activation (KAP) nám og mentorship hjá Þóru Hlín Friðriksdóttur 2021-2022
Engla Reiki 1&2 2021
Markþjálfun hjá Evolvía 2021
PMD stjórnendanám í Opna háskólanum 2015-2016
Lean Bronze Certification, SME Education Foundation, 2015
PRINCE2 Foundation Certification,ILX Group / APMG International, 2012
M.Sc. Rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2009-2011
B.Sc Rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2006-2009
Einkaþjálfaraskóli World class 2010
Tímabókanir fara fram í Noona (https://noona.is/improvement) eða með því að hafa samband marianna@improvement.is
Helstu miðlar:
LinkedIn: https://www.linkedin.com/in/mariannamagnus/
Instagram: https://www.instagram.com/improvementiceland
Facebook: https://www.facebook.com/improvement.is/
Heimasíða: www.improvement.is