Næstu viðburðir

Kíktu í dagatal Samkenndar til að skoða næstu námskeið

Starfsmótun: árangursrík leið til að njóta sín í starfi

Haldið á fimmtudegi milli kl 9.00 til 12:00 í Samkennd Heilsusetri.

Markmið vinnustofunnar:

  • auka skilning á verndandi þáttum í starfsumhverfinu
  • efla sjálfskoðun og meðvitund um eigin líðan í starfi
  • gefa þátttakendum hagnýt verkfæri sem nýtast í daglegu starfi
  • draga úr streytu í starfi
  • auka árangur og ánægju í starfi
Hvað:

Vinnustofan sameinar fræðslu, verkefnavinnu og umræður með það markmið að styðja þátttakendur í að efla eigin vellíðan í starfi. Farið er yfir helstu þætti í starfsumhverfinu sem hlúa að vellíðan. Einnig er ítarlega fjallað um starfsmótun (job crafting), fræðin um það hvað hver og einn getur gert til að efla eigin ánægju í starfi, en starfsmótun bæði kemur á og styður við helgun í starfi (work engagement) og virkar þannig sem forvörn við kulnun í starfi.

Fyrir hverja:
  • Vinnustofan er ætluð öllum sem eru tilbúnir að rýna í eigin störf og vilja taka markviss skref til að hlúa að eign vellíðan í starfi.
  • Vinnustofan hentar jafnt stjórnendum og sérfræðingum sem og einyrkjum og almennu starfsfólki.
Almennar upplýsingar:
Staður: Samkennd heilsusetur, Tunguhálsi 19, 2. hæð, 110 Reykjavík
Verð kr. 27.900
Hámarksfjöldi þátttakenda er 10
Flest stéttarfélög taka þátt í niðurgreiðslu námskeiðs gegn framvísun kvittunar.
 
Dagsetningar og skráning:
fimmtudaginn 24. september, kl. 9:00 – 12:00. Bókunarlinkur
fimmtudaginn 15. október, kl. 9:00 – 12:00. Bókunarlinkur
 
Starfsmótun (job crafting) felur í sér að staldra við og endurskoða hvernig við eigum í samskiptum á vinnustað og hvernig við sinnum starfinu okkar og mótum það – með það að markmiði að njóta okkar í starfi.
 
🌿 Rannsóknir um starfsmótun, sem spanna yfir aldarfjórðung, sýna ítrekað fram á að aukna vellíðan í starfi og draga ú líkum á kulnun.
 
Leiðbeinandi: Sigrún þorgeirsdóttir sérfræðngur um vellíðan í starfi og hefur víðtæka menntun og starfsreynslu sem verkefnastjóri og stjórnandi. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hennar www.starfsmotun.is/about

Sigrún
Þorgeirsdóttir

Sérfræðingur um vellíðan í starfi

Scroll to Top