Lýsing
Námskeið fyrir konur sem vilja hreyfa sig á meðvitaðan hátt og líða betur í eigin líkama. Námskeiðið samanstendur af rólegu en markvissu hreyfiflæði með áherslu á styrk, liðkun og teyjur. Í lok hvers tíma er 10-15 mín leidd slökun með áherslu á núvitund. Sólveig hefur sjálf glímt við streitu og heilsubrest og hefur sett þetta námskeið saman úr því sem hefur reynst henni vel í átt að betri heilsu og bættari lífsgæðum ásamt fagþekkingu sinni. Hver og ein vinnur á sínum hraða og mikilvægt er að hlusta alltaf á eigin líkama. Það að öðlast aukin styrk og teygja og liðka líkamann vinnur gegn verkjum og stirðleika. Það er ekkert um hopp eða mikla ákefð.
Tímasetningar
Mánudagar og miðvikudagar kl. 19:30 – 20:30
Miðvikudagar og föstudagar kl. 10:00 – 11:00
Föstudagar kl. 17:30 – 18:30, einu sinni í viku
Fyrirkomulag
Tímar tvisvar í viku. Þáttakendur fá að auki eina heimaæfingu senda með tölvupósti á viku.
Leiðbeinandi
Sólveig María Svavarsdóttir
Skráning
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á solvsvav@gmail.com.
Umsagnir
- “Besta námskeið sem ég hef verið á. Hentar mér best af öllu sem ég hef prófað” – Sigrún
- “Námskeiðið var frábært fyrir líkama og sál. Æfingarnar voru hæfilega erfiðar og einstaklega góð stemning og tónlist. Sólveig kom með góðar ráðleggingar og fróðleik. Slökun í lok tíma var vel þegin og þæginleg. Kærar þakkir fyrir fyrir mig” – Erla
- “Tímarnir hjá Sólveigu eru vel skipulagðir og nærandi. Andrúmsloftið er hlýtt og ég fann strax mikinn mun á orku eftir fyrsta tímann. Ég mæli heilshugar með námskeiðinu” – Lína.