Næstu viðburðir

Kíktu í dagatal Samkenndar til að skoða næstu námskeið

Að mæta jólunum með sorginni

Vinnustofa á netinu þar sem þér gefst rými fyrir ígrundun, sjálfsumhyggju og undirbúning fyrir jólin í skugga sorgar.

Hvenær: Mánudaginn 30.nóv. 2026,  kl. 18:30-20:30

Markmið: Hvernig get ég hlúð að mér í gegnum hátíðirnar eftir missi?

Jólin geta verið erfiður tími þegar við höfum misst einhvern sem okkur þykir vænt um. Hefðir, minningar og samvera geta kallað fram söknuð og gert fjarveru þess sem við höfum misst enn áþreifanlegri.

Í þessari tveggja klukkustunda vinnustofu gefst tækifæri til að staldra við, ígrunda eigin líðan og skoða hvað getur hjálpað okkur að takast á við jólahátíðirnar í skugga sorgarinnar.

Við ræðum meðal annars um væntingar, eigin þarfir, mörk, minningar og mikilvægi þess að leyfa sér að upplifa jólin á eigin forsendum. Einnig gefst þátttakendum tækifæri til að deila hugsunum og reynslu og finna stuðning í því að heyra frá öðrum sem eru í svipuðum sporum.

Markmiðið er ekki að finna eina rétta leið til að halda jól eftir missi, heldur að finna leiðir til að hlúa að sjálfum sér og komast í gegnum hátíðirnar með sem bestum hætti.

Þú þarft ekki að hafa svörin á hreinu eða vera tilbúin/n að deila persónulegri reynslu. Þú kemur einfaldlega eins og þú ert og tekur þátt á þínum eigin forsendum.

Fyrir hverja hentar vinnustofan? Vinnustofan er ætluð fullorðnum sem hafa misst ástvin og finna að jólin geta verið erfiður tími í kjölfar missisins. Hvort sem missirinn er nýlegur eða lengra um liðinn er vinnustofan tækifæri til að staldra við, skoða eigin þarfir og finna leiðir til að hlúa að sér yfir hátíðirnar. Einnig gefst kostur á að tengjast öðrum sem þekkja sorgina.

Fyrir hverja hentar vinnustofan síður? Vinnustofan er ekki einstaklingsmeðferð eða úrvinnsla á áföllum og erfiðri sorg. Hún hentar því síður þeim sem eru í bráðri krísu eða þurfa á einstaklingsbundnum stuðningi að halda. Hún kemur ekki í stað meðferðar eða faglegrar aðstoðar.

Staðsetning: Vinnustofan fer fram á netinu og þú færð sendan hlekk í netpósti stuttu fyrir. 

Verð og greiðslufyrirkomulag: Verð fyrir 2 klst vinnustofu er 18.000 kr.  Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við námskeið og vinnustofur. A.T.H takmarkað pláss.

Leiðbeinandi: Anna Sigurðardóttir er sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna, hefur sérhæft sig í Hugrænni atferlismeðferð (CBT) og Samkenndarmiðaðri meðferð (CFT). Jafnframt hefur hún góða reynslu af notkun og kennslu núvitundar (Mindfulness), og ACT (Acceptance and Commitment Therapy). Hún er eigandi og framkvæmdastýra Samkenndar Heilsuseturs. Anna sinnir samtalsmeðferð og handleiðslu fagfólks úr ýmsum starfsstéttum. Hægt er að lesa meira um menntun og starfsreynslu Önnu hér https://samkennd.is/teymid/anna/

Skráningarhlekkur: https://forms.gle/iEtvvBYTGe5QeYb78

Upplýsingar: Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að senda fyrirspurn á netfangið anna@samkennd.is 

Anna Sigurðardóttir

Sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna

Scroll to Top