Loading Events

« All Events

Svefn, seigla og sjálfsmildi – 4 vikna hagnýtt fræðslunámskeið – STAÐNÁMSKEIÐ

September 8 @ 14:00 - 16:00

Viltu læra að róa taugakerfið, bæta svefn og efla seiglu í daglegu lífi?

Hvar og hvenær: Kennt er einu sinni í viku í 2 klst í senn. Kennt í Samkennd Heilsusetri, 2.hæð, Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík. Umsjón með námskeiði hefur Inga Rún Björnsdóttir sálfræðingur, svefnráðgjafi og jóga nidra kennari. Hámark eru 10 þátttakendur til að tryggja einstaklignsmiðaða nálgun. Dagsetningar næstu námskeiða:

🗓️ Þriðjudaginn 11. ágúst 2026 til 1.september (þriðjudaga kl. 14.00-16.00).

🗓️ Þriðjudaginn 8.september 2026 til 29. september (þriðjudaga kl. 14.00-16.00).

🗓️ Þriðjudaginn 6.október 2026 til 27.október (þriðjudaga kl. 14.00-16.00)

🗓️ Þriðjudaginn 3.nóvember 2026 til 1.desember (þriðjudaga kl. 14.00-16.00 – athugið að ekki er kennt 24.nóv heldur er síðast tíminn 1.desember).

🗓️ Þriðjudaginn 5.janúar 2027 til 26.janúar (þriðjudaga kl. 14.00-16.00).

Hagnýtt fræðslu- og slökunarnámskeið með Ingu Rún sálfræðingi, svefnráðgjafa og jógakennara.

Hagnýt fræðsla og bjargráð út frá HAM nálgun (hugrænni atferlismeðferð og HAM-svefnleysi), ACT nálgun (acceptance and commitment therapy) og Samkenndarmiðaðri meðferð (Compassion Focused Therapy), en Inga Rún er sálfræðingur og svefnráðgjafi í klínísku starfi ásamt því að vera jóga nidra-og jógakennari. Fyrri hluti (1klst og 15mín) tímanna er hagnýt fræðsla og æfingar sem styðja við taugakerfið. Síðari hluti tímanna (45 mín) er jóga nidra djúpslökun og gong slökun. Samtals eru tímarnir 2 klst, einu sinni í viku, í 4 vikur. Einnig fá þátttakendur djúpslökunar hljóðupptökur til afnota heima.

Þátttakendur fá einstaklings ráðgjafaviðtöl hjá Ingu Rún, við upphaf og lok námskeiðs til að fá einstaklingsmiðaða nálgun og ráðleggingar t.d. er varðar bjargráð við svefnvanda og streitustjórnun. Einnig hafa þátttakendur aðgang að fræðsluefni og verkefnum á heimasíðu Ingu Rúnar meðan á námskeiði stendur. Þátttakendur er m.a. hvattir til að kortleggja svefn og venjur meðan á námskeiði stendur og fá endurgjöf og ráðleggingar frá Ingu Rún út frá gagnreyndum aðferðum.

Námskeiðið getur gagnast þeim sem:

  • Finna fyrir streitu, álagi, svefnvanda eða þreytu og vilja endurnýja orkuna, bæta svefn, auka streituþol og seiglu í daglegu lífi.
  • Vilja róa taugakerfið á áhrifaríkan hátt.
  • Vilja iðka núvitund í daglegu lífi.
  • Vilja meiri mildi og samkennd í eigin garð.

Dagskrá námskeiðs:

  • Vika 1 – Svefn, endurheimt og slökun
    Fræðsla um svefn og svefngæði. Farið yfir leiðir til að styðja við betri svefn og dýpri endurheimt. Kortlagning á svefni og svefnvenjum. Einstaklingsmiðuð inngrip við svefnvanda.
  • Vika 2 – Streitan og taugakerfið
    Fræðsla um taugakerfið og áhrif streitu á líkama og hugarstarf, ásamt æfingum til að koma jafnvægi á taugakerfið. Kortlagning á streitueinkennum. Einstaklingsmiðuð bjargráð.
  • Vika 3 – Núvitund, seigla og sjálfsmildi
    Hagnýtar æfingar úr núvitund, ACT og CFT sem efla seiglu, mildi í eigin garð og betri streitustjórnun í daglegu lífi.
  • Vika 4 – Gildi og markmið til framtíðar
    Fræðsla og æfingar um gildi og markmið og leiðir til að festa ný verkfæri og bjargráð í sessi.

Jóga nidra æfingar miða að því að virkja sefkerfi sjálfvirka taugakerfisins (parasympatíska kerfið), sem tengist hvíld, endurheimt og jafnvægi í líkamanum. Regluleg þjálfun getur því stuðlað að meira jafnvægi í taugakerfinu, auknu streituþoli og seiglu í daglegu lífi. Athugið að ef þú átt erfitt með að liggja á jógadýnu í slökun eru einnig þykkari, mýkri dýnur í boði. Þér er einnig frjálst að sitja í stól í slökuninni ef þú átt erfitt með að liggja í lengri tíma vegna verkja eða eitthvað slíkt.

Leiðbeinandi: Inga Rún Björnsdóttir starfar sem sálfræðingursvefnráðgjafi og jógakennari. Inga Rún starfaði áður sem sálfræðingur í taugasálfræðiþjónustu Landspítala, sem stundakennari í klínískri taugasálfræði við HÍ og undanfarin ár hefur hún starfað sem sálfræðingur hjá Betri Svefn við greiningu og meðferð svefnvanda og í Sálfræðiráðgjöfinni við almenna sálfræðiráðgjöf og meðferð. Í dag starfar hún sjálfstætt sem sálfræðingur í Samkennd Heilsusetri. Hún er með Cand. Psych. próf í sálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla, með áherslu á taugasálfræði og klíníska sálfræði. Inga Rún stundar einnig sérnám í klínískri taugasálfræði við HR samhliða störfum sem sálfræðingur og jógakennari.

Kostnaður: Verð fyrir námskeið er 52.000 kr. Flest stéttarfélög taka þátt í niðurgreiðslu námskeiðs gegn framvísun kvittunar svo ég hvet þig til að kanna það hjá þínu stéttarfélagi. Einnig er ég í samstarfi við Virk starfsendurhæfingarsjóð.

Bókanir og fyrirspurnir í tölvupósti: inga@inga.run eða með því að smella hér:

Details