
- This event has passed.
Orkuflæði – Mán & mið kl. 16:45 – Hefst 3. apríl
April 3, 2024 @ 16:45 - 17:45

Námskeiðið hefst 3. apríl
Á námskeiðinu eru tímarnir á mánudögum og miðvikudögum kl 16:45 og standa yfir í klukkutíma.
Þessir tímar eru fjölbreyttir jógatímar þar sem margar tegundir jóga fá pláss. Sumir tímar eru rólegir og mjúkir, aðrir eru kröftugir og í flæði. Grunnurinn byggist á Hatha yoga en oft er kröftugum æfingum spilað inn í og jafnvel æfingum sem ýta okkur aðeins út fyrir boxið og fá okkur stundum til að brosa og hafa húmor fyrir okkur sjálfum. Slökun í lok hvers tíma.
Leiðbeinandi Hildur Rut Björnsdóttir Jógakennari.
Verð 23.900,-
Áskrift 21.900,-
Skráning á jogatilthin@gmail.com.