Loading Events

« All Events

Afmælishátíð Samkenndar 28. febrúar

February 28 @ 10:00 - 17:00

Á afmælishátíð Samkenndar Heilsuseturs laugardaginn 28. febrúar gefst þér tækifæri til að taka þitt fyrsta skref til að kynnast rýminu og hitta umvefjandi fagfólk okkar án skuldbindingar. Kíktu í heimsókn og prufaðu kynningartíma eða hlustaðu á nærandi fræðsluerindi.

10:00 – 11:30 Orkugefandi og nærandi kynningartími
með Sólveigu – Meðvituð líkamsrækt, Heklu – Bandvefslosun og Hildi Rut – Jóga til þín.

Sólveig byrjar á rólegu hreyfiflæði með það að markmiði að styrkja og liðka líkamann. Hekla kynnir svo bandvefslosun þar sem unnið er á bandvefskerfi líkamans með sjálfsnuddi með sérstökum nuddboltum. Að lokum býður Hildur upp á yin teygjur og jóga nidra djúpslökun sem hefur góð áhrif á taugakerfið okkar. Hér er tækifæri til að kynnast þessum þremur hóptímakennurum sem bjóða upp á ólík námskeið. Þú gengur út endurnærð, í betra jafnvægi og með vellíðan í líkama og sál.

Skráningarhlekkur hér https://forms.gle/roBhdHTDw5zbSrUJ7

12:00 – 13:10 Fræðsluerindi
Hvað er heilsunudd?
Gunna Húnfjörð, eigandi Dharma heilsunudd- og snyrtistofu, heldur stutt erindi þar sem hún fjallar um hvað „heilsunudd“ er og hvernig mismunandi tegundir heilsunudds henta hverjum og einum með sérstaka áherslu á að útskýra áhrif sogæðanudds og bandvefsmeðferðar. Þá verður einnig fræðsla um nuddnámskeið fyrir almenning.

Hvaða meðferð hentar mér?
Ertu óviss um hvaða sálfræðimeðferð hentar þér best? Hrafnheiður Valdís Baldursdóttir sálfræðingur kynnir helsta muninn á Hugrænni atferlismeðferð, ACT, EMDR áfallameðferð og samkennd í eigin garð. Hún útskýrir hvernig mismunandi nálganir geta hentað ólíkum þörfum og hvaða verkfæri þær bjóða upp á, svo þú getir tekið upplýstari ákvörðun um næstu skref.

Blessaða samkenndin!
Anna Sigurðardóttir, stofnandi Samkenndar og sérfræðingur í klínískri sálfræði, fjallar um hvers vegna það getur reynst erfitt að sýna sjálfum sér samkennd, þrátt fyrir að vita hversu mikilvæg hún er. Einnig býður hún upp á leidda samkenndarhugleiðslu sem einfalt er að nota sem upphaf af eigin iðkun.

13:15 – 14:15 Fræðsluerindi
Að umvefja parasambandið. Sigríður Anna Einarsdóttir fjölskyldufræðingur fjallar stuttlega um hvað vert sé að ástunda í parasambandinu til þess að það eigi meiri líkur á að dafna og blómstra.

Flæði eykur orku og þakklæti friðsæld. Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur kynnir hagnýtar æfingar úr verkfærakistu jákvæðrar sálfræði.

14:45 – 16:00 Breathwork
Margrét Sigurbjörnsdóttir. Andrými – Breathwork býður upp á tíma í umbreytandi öndunarvinnu sem felur í sér öfluga hringlaga öndunartækni. Hún losar um spennu og streitu og getur komið af stað breyttu meðvitundarástandi sem getur leitt til ótrúlegra breytinga.

Skráning í gegnum netfangið: andrymi.breathwork@gmail.com.

Verið hjartanlega velkomin!
Samkennd Heilsusetur er á Tunguhálsi 19. 2 hæð.
samkennd.is

Details

  • Date: February 28
  • Time:
    10:00 - 17:00
  • Event Category:

Organizer