Næstu viðburðir

Kíktu í dagatal Samkenndar til að skoða næstu námskeið

Missir & sorg

Vinnustofa um sorgarvinnu & hvernig nálgun Samkenndarmiðaðar Meðferðar (Compassion focused Therapy, CFT) & verkfæri hennar samþættist þeirri vinnu vel.

Fyrir hvern?  Hentar sérstaklega vel fagfólki í heilbrigðis-, meðferðar- & ráðgjafastörfum sem vilja dýpka þekkingu sína, efla faglega færni & öðlast aukið öryggi í vinnu með fólki sem upplifir sorg & missi.

Samkenndarmiðuð meðferð (Compassioned Focused Therapy, CFT) og verkfæri hennar samþættast vel öðrum meðferðarformum og er góð viðbót þegar unnið er með sorgarvinnu, sjálfsgagnrýni og skömm.

Vinnustofan er fyrir byrjendur sem og lengra komna.

Um vinnustofuna:  Markmið vinnustofunnar er að veita:
  • Þekkingu á ólíkum tegundum missis og sorgar.
  • Færni í að greina sorg frá öðrum geðrænum vanda, svo sem þunglyndi, kvíða, áfallastreituröskun og langvinnri sorg.
  • Skilning á persónulegum og félagslegum þáttum sorgar.
  • Jafnframt verður fjallað um mikilvægi sjálfsiðkunar meðferðaraðila sem leið til að efla þann samkenndarramma sem er góður grundvöllur sorgarmeðferðar með skjólstæðingum sem upplifa verulegan missi í lífi sínu
  • Samkenndarmiðaðar aðferðir við sorg vegna missis sem tengist ekki dauðsfalli.
  • Þekking á því hvernig samkennd getur aukið sjálfbærni í aðstæðum þar sem sorgin er langvinn, mikil og/eða einstaklega erfið.
  • Kynning á grunnstoðum og verkfærum Samkenndarmiðaðar meðferðar í sorgarvinnu.
Í fjórum vikulegum lotum tvo tíma í senn munu þátttakendur fá fræðslu um nýjustu rannsóknir, taka þátt í upplifunar/reynsluæfingum og hugleiðandi iðkun til að dýpka bæði skilning og meðferðarfærni.

Dagsetning:
  • 2.febrúar. 2027.  kl. 18:30 – 20:30
  • 9.febrúar. 2027.  kl. 18:30 – 20:30
  • 16.febrúar. 2027. kl. 18:30 – 20:30
  • 23.febrúar. 2027. kl. 18:30 – 20:30
Námskeiðinu fylgir:
  • Glærupakki um það efni sem tekið er fyrir.
  • Vinnu- og verkefnablöð út frá meðferðarformi CFT.
Staðsetning: Fjarnám, kennsla fer fram á netinu og þú færð sendan hlekk fyrir hvern tíma ásamt glærupakka

Verð og greiðslufyrirkomulag: Verð fyrir 8 klst vinnustofu er 52.000 kr.  Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við námskeið og vinnustofur.

Leiðbeinandi: Anna Sigurðardóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna, hefur sérhæft sig í Hugrænni atferlismeðferð (CBT) og Samkenndarmiðaðri meðferð (CFT). Jafnframt hefur hún góða reynslu af notkun og kennslu núvitundar (Mindfulness), og ACT (Acceptance and Commitment Therapy). Hún er eigandi og framkvæmdastýra Samkenndar Heilsuseturs. Anna sinnir samtalsmeðferð og handleiðslu fagfólks úr ýmsum starfsstéttum. Hægt er að lesa meira um menntun og starfsreynslu Önnu hér https://samkennd.is/teymid/anna/

Skráningarhlekkur https://forms.gle/PEJaK8fhvKbKDMNj7

Upplýsingar: Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að senda fyrirspurn á netfangið anna@samkennd.is

Anna Sigurðardóttir

Sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna

Scroll to Top