Sigrún Þorgeirsdóttir

Sérfræðingur um vellíðan í starfi og starfsmótun (e. job crafting)

Sigrún Þorgeirsdóttir hefur víðtæka reynslu og menntun sem snýr bæði að rekstri og vellíðan. Í meistaraverkefni sínu frá HÍ (2025) rannsakaði hún starfsmótun (e. job crafting) sem felur í sér allt það sem einstaklingar geta sjálfir gert til að efla eigin vellíðan í starfi. Í dag starfar hún sem ráðgjafi og fyrirlesari, að auki heldur hún vinnustofur og netnámskeið þar sem þátttakendur fá í hendur praktísk verkfæri og taka fyrstu skrefin í að efla eigin ánægju og árangur í starfi út frá gagnreyndum aðferðum sjá nánar hér.

Sigrún hefur í rúma tvo áratugi unnið ýmist sjálfstætt og innan fyrirtækja sem verkefna- og viðburðastjóri og stjórnandi, síðast sem rekstrarstjóri í Heilsuborg (nú Heilsuklasinn) og þar áður sem hótelstjóri á Hótel Holti. Hún hefur séð um skipulagningu fjölda ráðstefna og viðburða, komið að kennslu námskeiða m.a. um þjónandi forystu  og haldið fyrirlestra og eigin námskeið um þjónustu.

Sigrún er með meistaragráðu í stjórnun frá Háskóla Íslands. Í lokaverkefni sínu tók hún viðtöl við 10 sérfræðinga, sem allir njóta sín í starfi, til að skoða hvað styðji við starfsmótun þeirra og vellíðan. Niðurstaða rannsóknarinnar sýndi fram á að þeir sem njóta sín í starfi taka ekki einungis virka ábyrgð á eigin starfi heldur einnig ábyrgð á eigin vellíðan í starfi – með starfsmótun. Þetta gerist ekki í tómarúmi, heldur í starfsumhverfi sem einkennist af sálrænu öryggi (e. psychological safety) sem lýsir sér í vinnustaðamenningu sem ,,endurspeglast í einstaklingum sem eru óhræddir við að láta rödd sína heyrast. Þeir geta sagt frá hugmyndum sínum og áhyggjum, spurt spurninga og viðurkennt mistök, án ótta við neikvæð viðbrögð samstarfsfólks (Edmondson, 2019)” sjá nánar hér.

 

MENNTUN

Þjónustustjórnun MS. Háskóli Íslands. 2025.

Self-compassion (mildi í eign garð). Vinnustofa hjá Kristin Neff, 2025.

Kennaranám í vinyasa jóga, Yogavin, 2020.

Kennaranám í kundalini jóga, Andartak, 2016.

Verkefnastjórnun. Endurmenntun Háskóla Íslands. 2010.

Viðskiptafræði BA. Anglia Ruskin University, England. 2003.

Hótelstjórnun. Hotel Management School Les Roches, Sviss. 1994.

 

Á heimasíðu Sigrúnar starfsmotun.is eru nánari upplýsingar um þá þjónustu sem hún býður upp á fyrir einstaklinga og teymi sem vilja njóta sín betur í vinnunni!

Scroll to Top