Loading Events

« All Events

Meðvituð líkamsrækt – Kvöldnámskeið – Hefst 5. janúar

January 5, 2026 @ 19:30 - 20:30

Meðvituð líkamsrækt – Kvöldnámskeið

Hefst 5. janúar og stendur til 11. febrúar.

Tímasetning: Kl: 19:30 – 20:30 á mánudögum og miðvikudögum.

Þáttakendur fá að auki eina heimaæfingu senda með tölvupósti á viku.

Lýsing
Námskeið fyrir konur sem vilja hreyfa sig á meðvitaðan hátt og líða betur í eigin líkama. Námskeiðið samanstendur af rólegu en markvissu hreyfiflæði með áherslu á styrk, liðkun og teyjur. Í lok hvers tíma er 10-15 mín leidd slökun með áherslu á núvitund. Sólveig hefur sjálf glímt við streitu og heilsubrest og hefur sett þetta námskeið saman úr því sem hefur reynst henni vel í átt að betri heilsu og bættari lífsgæðum ásamt fagþekkingu sinni. Hver og ein vinnur á sínum hraða og mikilvægt er að hlusta alltaf á eigin líkama. Það að öðlast aukin styrk og teygja og liðka líkamann vinnur gegn verkjum og stirðleika. Það er ekkert um hopp eða mikla ákefð.

Leiðbeinandi: Sólveig María Svavarsdóttir

Kostnaður: Verð fyrir 6 vikna námskeið er kr. 28.900

Skráning: Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á solvsvav@gmail.com

Umsagnir

  • “Besta námskeið sem ég hef verið á. Hentar mér best af öllu sem ég hef prófað” – Sigrún
  • “Námskeiðið var frábært fyrir líkama og sál. Æfingarnar voru hæfilega erfiðar og einstaklega góð stemning og tónlist. Sólveig kom með góðar ráðleggingar og fróðleik. Slökun í lok tíma var vel þegin og þæginleg. Kærar þakkir fyrir fyrir mig” – Erla
  • “Tímarnir hjá Sólveigu eru vel skipulagðir og nærandi. Andrúmsloftið er hlýtt og ég fann strax mikinn mun á orku eftir fyrsta tímann. Ég mæli heilshugar með námskeiðinu”  – Lína

Details

Organizer