Loading Events

« All Events

8 vikna Nærandi jóga nidra námskeið með Ingu Rún

August 25 @ 15:15 - 16:00
Hvenær: Kennt er einu sinni í viku, þriðjudaga frá kl. 15.15-16.00.
Dagsetningar næstu námskeiða:
25.ágúst 2026 til 13.október.
20.október 2026 til 22.desember
5.janúar 2027 til 23.febrúar
Hvar: Tímarnir eru í Samkennd Heilsusetri, Tunguhálsi 19 2.hæð, 110 Reykjavík.
Fyrir hverja: Námskeiðið hentar vel byrjendum sem og lengra komnum. Engin fyrri reynsla af jóga er nauðsynleg. Námskeiðið er ekki trúarlegs eðlis.
Námskeiðið getur gagnast þeim sem:
  • Finna fyrir streitu, álagi, svefnvanda eða þreytu.
  • Vilja endurnýja orkuna, bæta svefn, auka streituþol og seiglu í daglegu lífi.
  • Vilja róa taugakerfið á áhrifaríkan hátt.
Þetta fá þátttakendur:
  • Átta jóga nidra tíma með Ingu Rún.
  • Rými til að rækta innra jafnvægi og endurnýja orkuna.
  • Fræðslu um einföld og hagnýt verkfæri til að róa taugakerfið.
  • Jóga nidra hljóðupptöku til eignar sem hægt er að nota að vild. Tilbúin til niðurhals um leið og gengið er frá greiðslu.

Flest stéttarfélög taka þátt í niðurgreiðslu námskeiðs gegn framvísun kvittunar svo ég hvet þig til að kanna það hjá þínu stéttarfélagi.

Verð og skráningu má finna hér:

Jóga nidra er leidd meðvituð djúpslökun (ákveðin hugleiðslutækni). Þú liggur á bakinu, með teppi yfir þér og púða undir höfði og fylgir rödd leiðbeinanda sem fer með þig í gegnum vöðvaspennuæfingar, líkamsskönnun og öndunaræfingar. Regluleg þjálfun getur stuðlað að meira jafnvægi í taugakerfinu, auknu streituþoli og seiglu í daglegu lífi.
Leiðbeinandi: Inga Rún Björnsdóttir klínískur sálfræðingur og jógakennari. Sjá nánar um Ingu Rún hér: www.inga.run