Featured
Tölum saman – Samskiptanámskeið – Hefst 30. apríl
Það er fátt sem hefur jafn mikil áhrif á líf okkar og það sem á sér stað í tengslum við annað fólk. Góð tengsl og góð samskipti eru grundvöllur fyrir vellíðan og velgengni á flestum sviðum lífs, bæði í einkalífinu og á vinnustaðnum. Næsta námskeið hefst 30. apríl og er 6 vikna námskeið. Kennt verður á þriðjudögum kl 17-19.