BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Samkennd - ECPv6.15.20//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://samkennd.is
X-WR-CALDESC:Events for Samkennd
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260228T100000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260228T170000
DTSTAMP:20260601T224851
CREATED:20260216T150811Z
LAST-MODIFIED:20260218T140442Z
UID:10000218-1772272800-1772298000@samkennd.is
SUMMARY:Afmælishátíð Samkenndar 28. febrúar
DESCRIPTION:Á afmælishátíð Samkenndar Heilsuseturs laugardaginn 28. febrúar gefst þér tækifæri til að taka þitt fyrsta skref til að kynnast rýminu og hitta umvefjandi fagfólk okkar án skuldbindingar. Kíktu í heimsókn og prufaðu kynningartíma eða hlustaðu á nærandi fræðsluerindi. \n10:00 – 11:30 Orkugefandi og nærandi kynningartími\nmeð Sólveigu – Meðvituð líkamsrækt\, Heklu – Bandvefslosun og Hildi Rut – Jóga til þín. \nSólveig byrjar á rólegu hreyfiflæði með það að markmiði að styrkja og liðka líkamann. Hekla kynnir svo bandvefslosun þar sem unnið er á bandvefskerfi líkamans með sjálfsnuddi með sérstökum nuddboltum. Að lokum býður Hildur upp á yin teygjur og jóga nidra djúpslökun sem hefur góð áhrif á taugakerfið okkar. Hér er tækifæri til að kynnast þessum þremur hóptímakennurum sem bjóða upp á ólík námskeið. Þú gengur út endurnærð\, í betra jafnvægi og með vellíðan í líkama og sál. \nSkráningarhlekkur hér https://forms.gle/roBhdHTDw5zbSrUJ7 \n12:00 – 13:10 Fræðsluerindi\nHvað er heilsunudd?\nGunna Húnfjörð\, eigandi Dharma heilsunudd- og snyrtistofu\, heldur stutt erindi þar sem hún fjallar um hvað „heilsunudd“ er og hvernig mismunandi tegundir heilsunudds henta hverjum og einum með sérstaka áherslu á að útskýra áhrif sogæðanudds og bandvefsmeðferðar. Þá verður einnig fræðsla um nuddnámskeið fyrir almenning. \nHvaða meðferð hentar mér?\nErtu óviss um hvaða sálfræðimeðferð hentar þér best? Hrafnheiður Valdís Baldursdóttir sálfræðingur kynnir helsta muninn á Hugrænni atferlismeðferð\, ACT\, EMDR áfallameðferð og samkennd í eigin garð. Hún útskýrir hvernig mismunandi nálganir geta hentað ólíkum þörfum og hvaða verkfæri þær bjóða upp á\, svo þú getir tekið upplýstari ákvörðun um næstu skref. \nBlessaða samkenndin!\nAnna Sigurðardóttir\, stofnandi Samkenndar og sérfræðingur í klínískri sálfræði\, fjallar um hvers vegna það getur reynst erfitt að sýna sjálfum sér samkennd\, þrátt fyrir að vita hversu mikilvæg hún er. Einnig býður hún upp á leidda samkenndarhugleiðslu sem einfalt er að nota sem upphaf af eigin iðkun. \n13:15 – 14:15 Fræðsluerindi\nAð umvefja parasambandið. Sigríður Anna Einarsdóttir fjölskyldufræðingur fjallar stuttlega um hvað vert sé að ástunda í parasambandinu til þess að það eigi meiri líkur á að dafna og blómstra. \nFlæði eykur orku og þakklæti friðsæld. Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur kynnir hagnýtar æfingar úr verkfærakistu jákvæðrar sálfræði. \n14:45 – 16:00 Breathwork\nMargrét Sigurbjörnsdóttir. Andrými – Breathwork býður upp á tíma í umbreytandi öndunarvinnu sem felur í sér öfluga hringlaga öndunartækni. Hún losar um spennu og streitu og getur komið af stað breyttu meðvitundarástandi sem getur leitt til ótrúlegra breytinga. \nSkráning í gegnum netfangið: andrymi.breathwork@gmail.com. \nVerið hjartanlega velkomin!\nSamkennd Heilsusetur er á Tunguhálsi 19. 2 hæð.\nsamkennd.is
URL:https://samkennd.is/event/afmaelishatid-samkenndar-2026/
CATEGORIES:Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://samkennd.is/wp-content/uploads/2026/02/afmaeli2026.png
ORGANIZER;CN="Gunna H%C3%BAnfj%C3%B6r%C3%B0":MAILTO:gunna@dharmaheilsa.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240903T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240903T170000
DTSTAMP:20260601T224851
CREATED:20240705T094423Z
LAST-MODIFIED:20240705T095421Z
UID:10000095-1725375600-1725382800@samkennd.is
SUMMARY:Verkfæri fyrir aukna velsæld - Hefst 3. september
DESCRIPTION:Næsta námskeið: Þriðjudagur 3. september kl 15-17 \nViltu læra aðferðir til að ná betri stjórn á eigin líðan? Viltu læra aðferðir til að setja þér markmið og fylgja þeim eftir?  \nVerkfæri fyrir aukna velsæld er 6 vikna hópmeðferð þar sem þátttakendur fá verkfæri til að auka virkni og vellíðan og læra að setja sér markmið. \nHámarksþátttaka á námskeiðinu eru 10 manns. Leiðbeinandi mun kappkosta að gera andrúmsloftið persónulegt og þægilegt til að þátttakendur geti sagt frá reynslu sinni og fengið endurgjöf frá námskeiðshaldara.  \nÁ námskeiðinu læra þátttakendur: \n\nAð takast á við vanlíðan á uppbyggilegan hátt\nAðferðir til að styrkja sig í áskorunum daglegs lífs\nAðferðir til að bæta frammistöðu\nAðferðir til að finna gildi sín og setja sér markmið\n\nSérstaða námskeiðsins\nFelst í því að það byggir á tveimur meðferðarstefnum: Hugrænni atferlismeðferð (HAM) og sáttar- og atferlismeðferð. \nFyrir hverja?\nÞá sem vilja takast á við vanlíðan á uppbyggilegan hátt. Þá sem vilja setja sér markmið en eru hræddir við að fara út fyrir þægindarammann. Þá sem eru á krossgötum og vantar verkfæri til að takast á við nýjar áskoranir. \nHvar og hvenær?\nEinu sinni í viku í 6 vikur í 2 klst í senn. Námskeiðið fer fram í húsnæði Samkenndar-Heilsuseturs\, Tunguhálsi 19\, 2 hæð. \nDagskrá námskeiðs: \n\nFarið í grunnatriði hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og hvernig þau nýtast til að bæta líðan og auka virkni.\nFræðsla um félagskvíða út frá hugrænni atferlismeðferð og verkfæri kynnt til að takast á við hann.\nKynning á ACT (sáttar- og atferlismeðferð).\nFræðsla um gildi og markmið út frá ACT.\n\nKostnaður: 75.000.-\nAthugið að flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið. Þá geta atvinnuleysisbótaþegar sótt um greiðsluþátttöku hjá Vinnumálastofnun. Þátttakendur eru hvattir til að kanna rétt sinn til endurgreiðslu. \nLeiðbeinandi: Hugrún Sigurjónsdóttir sálfræðingur.\nHugrún þýddi bókina Hamingjugildran í fyrra. Bókin (Happiness trap) byggir á ACT meðferðarstefnu og hefur verið seld í milljónum eintaka um allan heim. Höfundur bókarinnar Russ Harris hélt tveggja daga námskeið hér á landi í maí síðastliðnum og sat Hugrún það námskeið. Hægt er að lesa um starfsreynslu og fagþekkingu Hugrúnar á  https://samkennd.is/teymid/hugrun/ \nSkráning:\nHægt er að skrá sig á námskeiðið á hugrun@samkennd.is og hugrun85@hotmail.com \n \n  \n 
URL:https://samkennd.is/event/verkfaeri-fyrir-aukna-velsaeld-3-september/
CATEGORIES:Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://samkennd.is/wp-content/uploads/2024/07/Verkfaeri-fyrir-aukna-velsaeld.jpg
ORGANIZER;CN="Hugr%C3%BAn Sigurj%C3%B3nsd%C3%B3ttir":MAILTO:hugrun85@hotmail.com
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240528T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240528T160000
DTSTAMP:20260601T224851
CREATED:20240426T085737Z
LAST-MODIFIED:20240705T094310Z
UID:10000082-1716904800-1716912000@samkennd.is
SUMMARY:Verkfæri fyrir aukna velsæld - 28.maí
DESCRIPTION:Næsta námskeið hefst 28 maí og stendur í sex vikur.  Námskeiðið fer fram á Samkennd-Heilsusetri á þriðjudögum á milli 14-16.Verð: 65.000.- Athugið að flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið.Leiðbeinandi er Hugrún Sigurjónsdóttir sálfræðingur.Nánari upplýsingar um leiðbeinanda má finna á Samkennd-Heilsusetur.Skráning: á hugrun85@hotmail.com 
URL:https://samkennd.is/event/verkfaeri-fyrir-aukna-velsaeld-28-mai/
CATEGORIES:Námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://samkennd.is/wp-content/uploads/2024/07/Verkfaeri-fyrir-aukna-velsaeld.jpg
ORGANIZER;CN="Hugr%C3%BAn Sigurj%C3%B3nsd%C3%B3ttir":MAILTO:hugrun85@hotmail.com
END:VEVENT
END:VCALENDAR